Um Kristbjörg ehf
Kristbjörg HF var stofnað 1974 sem útgerðarfyrirtæki af þeim Gísla M Gíslasyni, Guðmundi Williamssyni, Kristjáni Ásgeirssyni og mökum þeirra. Árið 1975 fórst bátur þeirra Kristbjörg ÓF 11 og rekstrinum breytt í netaverkstæði. Árið 1996 keyptu Björn Kjartansson, Kristján Hauksson, Rammi HF og Þorbjörn Sigurðsson fyrirtækið og hafa rekið það síðan. Árið 2000 keypti svo Kristbjörg ehf, byggingar og útgerðarverslunina Valberg ehf á Ólafsfirði.
Kristbjörg ehf flutti í nýtt húsnæði 2007 sem er vel útbúið tækjum og tólum. Almenn veiðafæraþjónusta er undirstaða rekstursins, víraverkstæði vel tækjum búið með 600 tonna þrykkivél og hopparapressa var keypt 1997 og stendur enn fyrir sínu. Undanfarin ár hefur fyrirtækið flutt inn snjókeðjur frá Trygg í Noregi og hefur sala vaxið mikið um allt land.
Starfsmenn fyrirtækisins eru:
Kristján Hauksson
Björn Kjartansson
Sævar Birgisson |